Home / Biblíuefni / Áform

Áform

Það er viturlegt að gera áætlanir. Biblían segir: Ok 13:16 „Kænn maður gjörir allt með skynsemd, en heimskinginn breiðir út vitleysu.“

Hafið ekki áhyggjur, leggið áformin í hendi Guðs. Biblían segir: Mt 6:34 „Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning.“

Fáið góða ráðgjöf til aðstoðar við fyrirætlanir. Biblían segir: Ok 15:22 „Áformin verða að engu, þar sem engin er ráðagerðin, en ef margir leggja á ráðin, fá þau framgang.“

Skipuleggið vandlega og af ásettu ráði. Biblían segir: Ok 21:5 „Fyrirætlanir iðjumannsins reynast fésamar vel, en öll flasfærni lendir í fjárskorti.“

Vönduð áform ættu að fela í sér undirgefni við Guð. Bibían segir: Jk 4:13-16 „Heyrið, þér sem segið: Í dag eða á morgun skulum vér fara til þeirrar eða þeirrar borgar, dveljast þar eitt ár og versla þar og græða! Þér vitið ekki hvernig líf yðar mun verða á morgun. Því að þér eruð gufa, sem sést um stutta stund en hverfur síðan. Í stað þess ættuð þér að segja: Ef Drottinn vill, þá bæði lifum vér og þá munum vér gjöra þetta eða annað. En nú stærið þér yður í oflátungsskap. Allt slíkt stærilæti er vont.“

Vitrir menn skipuleggja fyrirfram. Biblían segir: Lk 14:28-31 „Hver yðar sest ekki fyrst við, ef hann ætlar að reisa turn, og reiknar kostnaðinn, hvort hann eigi nóg til að ljúka verkinu? Ella má svo fara, að hann leggi undirstöðu, en fái ekki við lokið, og allir, sem það sjá, taki að spotta hann og segja: Þessi maður fór að byggja, en gat ekki lokið. Eða hvaða konungur fer með hernaði gegn öðrum konungi og sest ekki fyrst við og ráðgast um, hvort honum sé fært að mæta með tíu þúsundum þeim er fer á móti honum með tuttugu þúsundir?“

Hver eru áform Guðs með okkur? Biblían segir: Jer 29:11-13 „Því að ég þekki þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju með yður segir Drottinn fyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. Þá munuð þér ákalla mig og fara og biðja til mín, og ég mun bænheyra yður. Og þér munuð leita mín og finna mig. Þegar þér leitið mín af öllu hjarta,“