Home / Biblíuefni / „Spámenn“/„Spákonur“

„Spámenn“/„Spákonur“

Guð bannar fjölkynngi, galdra og verk „gjörninga-spámanna“ Biblían segir: 5M 18:9-13 „ Þegar þú kemur inn í landið, sem Drottinn Guð þinn gefur þér, þá skalt þú ekki taka upp svívirðingar þessara þjóða. Eigi skal nokkur finnast hjá þér, sá er láti son sinn eða dóttur ganga gegnum eldinn, eða sá er fari með galdur eða spár eða fjölkynngi, eða töframaður eða gjörningamaður eða særingamaður eða spásagnamaður eða sá er leiti frétta af framliðnum. Því að hver sá, er slíkt gjörir, er Drottni andstyggilegur, og fyrir slíkar svívirðingar rekur Drottinn Guð þinn þá burt undan þér. Þú skalt vera grandvar gagnvart Drottni Guði þínum.“

Guð einn þekkir framtíðina. Biblían segir: Jes 8:19-20 „Ef þeir segja við yður: Leitið til andasæringarmanna og spásagnarmanna, sem hvískra og umla! Á ekki fólk að leita frétta hjá guðum sínum og leita til hinna dauðu vegna hinna lifandi? þá svarið þeim: Til kenningarinnar og vitnisburðarins! Ef menn tala ekki samkvæmt þessu orði, hafa þeir engan morgunroða.“