Home / Biblíuefni / Falskristar

Falskristar

Jesús varaði við því að á síðustu dögum myndu upp rísa falskristar sem þættust vera Messías og fullyrtu að þeir væru frelsarar heimsins. Biblían segir: Mt 24:4-5 „Jesús svaraði þeim: Varist að láta nokkurn leiða yður í villu. Margir munu koma í mínu nafni og segja: Ég er Kristur! og marga munu þeir leiða í villu.“

Í Nýja testamentinu er upprunalega gríska orðið fyrir Krist „Cchristos.“ Sama orðið í Gamla testamentinu á hebresku er „Mashiach“ sem þýðir Messías. Bókstaflega þýðing beggja orðanna er „hinn smurði“. Þetta er titillinn og persónueinkennið sem Jesús viðurkenndi meðan hann starfaði í Palestínu. Biblían segir: Jh 4:25-26 „Konan segir við hann: Ég veit, að Messías kemur það er Kristur. Þegar hann kemur, mun hann kunngjöra oss allt. Jesús segir við hana: Ég er hann, ég sem við þig tala.“

Stuttu fyrir krossfestinguna flutti Jesús fyrirlesturinn um spádóma varðandi atburðina sem munu eiga sér stað á síðustu dögum rétt fyrir endurkomuna. Biblían segir: Mt 24:23-26 „Ef einhver segir þá við yður: Hér er Kristur eða þar, þá trúið því ekki. Því að fram munu koma falskristar og falsspámenn, og þeir munu gjöra stór tákn og undur til að leiða afvega jafnvel hina útvöldu, ef orðið gæti. Sjá, ég hef sagt yður það fyrir. Ef þeir segja við yður: Sjá, hann er í óbyggðum, þá farið ekki þangað. Ef þeir segja: Sjá, hann er í leynum, þá trúið því ekki.“

Jesús lagði áherslu á að falskristar myndu framkvæma undur og kraftaverk sem valda myndu hræðilegri blekkingu. Margir kristnir einstaklingar trúa því að ef þeir bara trúa á Jesú Krist, muni þeir verða verndaðir frá blekkingum síðustu daga. Samt sem áður margfaldast blekkingin vegna þess að það eru tveir Jesú Kristar, ekki bara einn. Sumir verða blekktir og fylgja röngum Jesú. Biblían segir: 2Kor 11:3-4 „En ég er hræddur um, að eins og höggormurinn tældi Evu með flærð sinni, svo kunni og hugsanir yðar að spillast og leiðast burt frá einlægri og hreinni tryggð við Krist. Því að ef einhver kemur og prédikar annan Jesú en vér höfum prédikað, eða þér fáið annan anda en þér hafið fengið, eða annað fagnaðarerindi en þér hafið tekið á móti, þá umberið þér það mætavel.“ Páll postuli er hér að tala við hina frumkristnu. Hann varar þá við fölskum postulum sem predika um Jesú sem er ekki hinn sanni Jesús Biblíunnar. Þessi annar Jesús er ímyndun, tilbúningur spilltra ímyndanna og rangra hugsana falskra postula. Boðskapurinn sem þessi Jesús predikar er frábrugðinn fagnaðarerindinu sem er ritað í Biblíuna og predikað af hinum sönnu postulum. Ennig fylgir þessum falska boðskap andi sem er falskur. Það er ekki heilagur andi hinnar guðlegu þrenningar.

Hverjum eru þessir fylgjendur einhvers annars Jesú að þjóna? Biblían segir: 2Kor 11:13-15 „Því að slíkir menn eru falspostular, svikulir verkamenn, er taka á sig mynd postula Krists. Og ekki er það undur, því að Satan sjálfur tekur á sig ljósengilsmynd. Það er því ekki mikið, þótt þjónar hans taki á sig mynd réttlætisþjóna. Afdrif þeirra munu verða samkvæmt verkum þeirra.“ Hinn Jesús er falskur Jesús sem Satan hefur sviðsett, falskur Jesús sem getur jafnvel tekið á sig ljósengilsmynd.

Rétt áður en Jesús kemur aftur mun mikill falskristur birtast. Biblían segir: 2Þ 2:3-4 „ Látið engan villa yður á nokkurn hátt. Því að ekki kemur dagurinn nema fráhvarfið komi fyrst og maður syndarinnar birtist. Hann er sonur glötunarinnar, sem setur sig á móti Guði og rís gegn öllu því, sem kallast Guð eða helgur dómur. Hann sest í musteri Guðs og gjörir sjálfan sig að Guði.“ Í þessum afdrifaríka spádómi um atburði síðustu daga segir Biblían að það muni verða uppreisn og mikið fráfall frá trúnni. Samfara þessu fráfalli mun „maður lögleysunnar“ birtast, sem er einnig kallaður „maður syndarinnar” eða andkristur. Þessi mikli falskristur mun setjast í musteri Guðs og gjöra sjálfan sig að Guði.

Hvað verður um þennan falskrist og hvernig getum við þekkt hann? Biblían segir: 2Þ 2:8-10 „Þá mun lögleysinginn opinberast, og honum mun Drottinn Jesús tortíma með anda munns síns og að engu gjöra þegar hann birtist við endurkomu sína. Lögleysinginn kemur fyrir tilverknað Satans með miklum krafti, lygatáknum og undrum og með alls konar ranglætisvélum, sem blekkja þá, sem glatast, af því að þeir veittu ekki viðtöku og elskuðu ekki sannleikann, svo að þeir mættu verða hólpnir.“ Fylgjendur hins falska Messíasar verða blekktir vegna þess að þeir neita að elska sannleika Guðs eins og hann er opinberaður í heilagri Ritningu.

Jesús lagði áherslu á að það væri ekki nóg bara að játa „nafn“ Drottins til að komast inn í himininn. Það verður að líka að „gera“ vilja Föðurins. Biblían segir: Mt 7:21„Ekki mun hver sá, sem við mig segir: Herra, herra, ganga inn í himnaríki, heldur sá einn, er gjörir vilja föður míns, sem er á himnum.“ Jesús sagði einnig, Jh 6:40 „Því sá er vilji föður míns, að hver sem sér soninn og trúir á hann, hafi eilíft líf, og ég mun reisa hann upp á efsta degi.“ Þannig verður að vera „trú á Soninn“ íhugun um hinn sanna Jesú, um líf hans og trú á orðið, sem hann talaði. Jh 5:24 „Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem heyrir orð mitt og trúir þeim, sem sendi mig, hefur eilíft líf og kemur ekki til dóms, heldur er hann stiginn yfir frá dauðanum til lífsins.“

Sorglegt er til þess að vita að þeir sem einlæglega fylgja þessum falskristum telja sig sanna tilbiðjendur, ákafir að vinna verk Krists. Þeir munu jafnvel kenna í nafni Jesú og reka út illa anda og gera kraftaverk í hans nafni Biblían segir: Mt 7:22-23 „Margir munu segja við mig á þeim degi: Herra, herra, höfum vér ekki kennt í þínu nafni, rekið út illa anda í þínu nafni og gjört í þínu nafni mörg kraftaverk? Þá mun ég votta þetta: Aldrei þekkti ég yður. Farið frá mér, illgjörðamenn.“ Fylgendur falskrists iðka lögleysu. Þeir brjóta lög Guðs; þeir virða að vettugi boðorð Jesús. Jesús segir: Jóh 14:21 „Sá sem hefur boðorð mín og heldur þau, hann er sá sem elskar mig. En sá sem elskar mig, mun elskaður verða af föður mínum, og ég mun elska hann og birta honum sjálfan mig.“